Sálfræðimeðferð á stofu
Fólk leitar til sálfræðinga af mismunandi ástæðum. Sálfræðingar eru tilbúnir til að taka vel á móti öllum veita ráð, hjálp, stuðning og meðferð. Í fyrstu er nauðsynlegt að afla upplýsinga, meta stöðuna og fara yfir væntingar, þarfir og markmið.
Um sálfræðimeðferð á stofu
Kristín Linda sálfræðingur veitir öllum eldri en 20 ára sálfræðiþjónustu en hefur þó sérstaka reynslu af því að sinna þeim sem eru 40 ára og eldri. Hún sinnir bæði hefðbundinni sálfræðiþjónustu á sálfræðistofu sinni á Selfossi og á stofu hjá Samkennd á Tunguhálsi í Reykjavík og fjarheilbrigðisþjónustu / fjarviðtölum hvert á land sem er gegnum vefsvæðið Kara Connekt.com sem viðurkennt er og samþykkt af Landlæknisembættinu.
Kristín Linda leggur áherslu á að mæta hverjum og einum þar sem þörfin er mest hverju sinni. Vinna með þá atburði, vanda og áskoranir sem sá sem til hennar leitar telur mest knýjandi á þeim tíma og veita faglega, hagnýta, raunhæfa, heilsubætandi og valdeflandi hjálp og bjargráð.
Huglind á Selfossi og í Reykjavík: Á sálfræðistofum sínum á Selfossi og í Reykjavík tekur Kristín Linda á móti einstaklingum sem vilja sækja sér meðferð, stuðning, ráðgjöf, aðstoð við stefnumótun í eigin lífi eða handleiðslu. Sjá nánar undir: Panta tíma og fyrirkomulag.
Margskonar vandi: Í raun getur ástæða komu verið allt milli himins og jarðar en nefna má sem dæmi: Vanlíðan, depurð, óánægju, sjálfsmyndarvanda, tómleika, vonleysi, missi, sorg, áhyggjur, kvíða, áföll, streitu, þrot og kulnun. Samskiptavanda, vansæld og erfiðleika, á vinnustað, heimili, við vini, stórfjölskyldu, börn eða maka. Erfiða lífsviðburði, veikindi, sjálf sín eða sinna, fíkn og neyslu í fjölskyldu, framhjáhald, svik, skilnaði, gjaldþrot, höfnun, einangrun og einsemd.
Stefnumótun og uppbygging: Kristín Linda hefur sérhæft sig í jákvæðri uppbyggingu og stefnumótun í eigin lífi. Sífellt fleiri kjósa að leita sér faglegar aðstoða við eigin stefnumótun, forgangsröðun, ákvarðanir og lífsstíl. Hvort sem er í önn dagsins eða þegar staðið er á einn eða anna hátt á krossgötum, gengið í gegnum tímamót og breytingar.
Handleiðsla: Í gegnum árin hefur Kristín Linda sinnt margskonar handleiðslu fyrir einstaklinga. Faglegri handleiðslu í starfi og samskiptum á vinnustað. Handleiðslu gegnum erfiða lífsviðburði og verkefni sem fólk tekst á við utan vinnu svo sem í sjálfboðaliðastarfi, hópum, félögum, stórfjölskyldu eða áhugamálum. Sem dæmi má nefna að fjöldi skólastjórnenda, kennara, heilbrigðisstarfsfólks og fagfólks sem starfar í félagsþjónustu hefur nýtt sér handleiðslu Kristínar Lindu. Rétt er að taka fram í þessu sambandi að Kristín Linda hefur réttindi til að stafa bæði sem grunnskóla og framhaldsskólakennari og hefur starfað í framhaldsskóla við sálfræðikennslu.
Meðferð og aðferðir: Kristín Linda hlaut starfsleyfi frá Landlækni sem sálfræðingur/psychologist árið 2013 og hefur starfað við fagið síðan þá og fékk starfsleyfi frá Landlækni til að stunda fjarheibrigðisþjónustu árið 2023. Sjá nánar undir Sálfræðimeðferð í fjarvinnu. Hún stundar ár hvert markvissa endurmenntun og fylgist með því nýjast á fræðasviðinu. Kristín Linda nýtir gagnreyndar meðferðir og aðferðir sem sýnt hefur verið fram á í rannsóknum að virka. Sem dæmi má nefna: Hugræn atferlismeðferð, ACT Acceptance and committment therapy/Sátta og stefnumótandi meðferð, Samkenndarmeðferð/Self Compassion therapy, Núvitund og Jákvæða sálfræði.