Námskeið og vinnustofur
Kristín Linda heldur námskeið og vinnustofur bæði hérlendis og erlendis sem byggja á sálfræðilegum grunni og snúa að líðan, lífsgæðum, heilsu og hamingju fólks.
Um námskeið og vinnustofur
Lögð er áhersla á að námskeiðin og vinnustofurnar séu fagleg og hagnýt en líka á léttu nótunum. Kristín Linda hefur lag á að slá á létta strengi, koma með nærtæk og skemmtileg dæmi og setja fram skýra hagnýta punkta sem nýtast beint í eigin lífi og starfi. Tíminn er nýttur sem best bæði til að leggja inn fræðslu, þekkingu og aðferðir og til virkrar þátttöku þeirra sem í hlut eiga í hópvinnu, paravinnu og samræður. Ávallt er skipulagt og unnið í samstarfi við þann sem stendur fyrir námskeiðinu eða vinnustofunni.
Kristín Linda tekur að sér allt frá styttri vinnustofum, tvær til fjórar klukkustundir til námskeiða sem telja mörg skipti og klukkutíma og námskeiða erlendis sem eru í eins marga daga og óskað er eftir. Sjá fyrirlestra sé óskað eftir skemmri tíma. Sjá kvenna og námsferðir erlendis ef við á.
Meðal námskeiða sem Kristín Linda hefur haldið undanfarin ár eru:
- STARFSDAGAR GRUNNSKÓLA OG LEIKSKÓLA: Margskonar námskeið
- NÁMSKEIÐ UM JANE AUSTEN - Einn frægasta rithöfund heims og bækur hennar. Haldið í Bretlandi í samvinnu við Skotgöngu.
- VINNUDAGAR STARFSFÓLKS Í HEILBRIGÐISSTÖRFUM: Margskonar vinnustofur
- KVENNANÁMSKEIÐ Í SAMVINNU VIÐ SKOTGÖNGU: Sjá kvenna og námsferðir erlendis
- NÁMSKEIÐ FYRIR SKÓLA Í SAMVINNU VIÐ SKOTGÖNGU: Sjá kvenna og námsferðir erlendis
- ENDURMENNTUN HÁSKÓLA ÍSLANDS: Jákvæð sálfræði
- ENDURMENNTUN HÁSKÓLA ÍSLANDS: Hygge
- VINNUSTOFUR FYRRI FÉLAGASAMTÖK
- FRÆÐSLUMIÐSTÖÐVAR SVEITARFÉLAGA: Margskonar námskeið
- STARFSDAGAR SVEITARFÉLAGA: Margskonar vinnustofur
Meðal þeirra sem hafa valið að fá fyrirlestur frá Kristínu Lindu má nefna: Grunnskóla, framhaldsskóla, ríkisstofnanir, starfsgreinafélög, áhugamannafélög og landssamtök.
Upplifun þátttakenda á námskeiðum
Námskeið fyrir starfsfólk skóla á Spáni vorið 2024: „Starfsfólk Dalvíkurskóla þakkar fyrir einstaklega fróðlegt, nærandi og skemmtilegt námskeið. Við förum heim með marga frábæra punkta og góða sýn, sem sannarlega eiga eftir að nýtast okkur vel í starfi og einkalífi. Við lærðum m.a. um heilsueflandi lífstíl, heilsusamlega vinnuhegðun, uppbyggileg samskipti og forvarnir gegn kulnun og þroti. Kristín Linda er ofurfyrirlesari, einlæg, beinskeytt og einstaklega fyndin. Það er einstaklega gott að hlusta á hana, efnið sem við fengum í hendur frá henni vel fram sett faglegt og gott. Fyrir hönd starfsfólks Magnea Kristín Helgadóttir.
Námskeið fyrir starfsfólk skóla á Spáni vorið 2024: „Takk kærlega fyrir frábært námskeið sem hristi svo sannarlega upp í mér og vakti mig aftur til umhugsunar um lífið og hvernig ég er að lifa því. Þú ert ofurfyrirlesari Kristín Lina, ert beinskeytt, einlæg og fyndin. Erna Björnsdóttir