Vorið 2024 efndi Kristín Linda ásamt Ingu Geirsdóttur hjá Skotgöngu til kvennaferðar til Englands í fótspor Jane Austen. Kristín Linda sá um fræðslu og námskeið um Jane en Inga um allt skipulag ferðarinnar. Mikil ánægja var með ferðina og nú standa bókanir yfir í næstu ferð vorið 2025. Í framhaldi af þessu hefur Kristín Linda nú ákveðið að efna til áhugaverðs verkefni til heiðurs Jane Austen í samvinnu við Bókasafn Kópavogs á næsta ári. Fyrsti viðburðinn verður 16 janúar, nánar auglýst síðar.