Í fótspor Jane Austen – England – Vor 2025

Kristín Linda sálfræðingur hjá Huglind og Inga Geirs fararstjóri hjá Skotgöngu bjóða upp á vikuferð um slóðir JANE AUSTEN hins fræga rithöfundar. Farið verður um sveitir Englands og gist í Winchester og Bath. Heillandi dömuferð fyrir konur á öllum aldri.

Í fótspor Jane Austen – England – Vor 2025

Í fótspor Jane Austen – önnur ferð vorið 2025 – bókanir standa yfir

Kristín Linda og Inga Geirs fararstjóri hjá Skotgöngu fóru vorið 2024 með 40 konur í afar vel heppnaða ferð í fótspor hins fræga rithöfundar Jane Austen (1775-1817). Ferðin fékk frábæra dóma og nú þegar eru hafnar bókanir í næst ferð til Englands í fótspor Jane Austen vorið 2025.

Flogið er til London og gist í Winchester og Bath og sóttir heim sögufrægir staðir. Kristín Linda sér um vandaða og skemmtilega fræðslu um Jane Austen og Inga Geirs um fararstjórn.

Afar þétt og vönduð dagskrá, reynd og jákvæð fararstjórn, tækifæri til nýrra kynna, ríkuleg fræðsla og fjöldi upplifana. Kjörin ferð bæði fyrir bókaklúbba, saumaklúbba, vinkonur, mæðgur, systur, frænkur og ekki síður fyrir stakar konur þar sem sífelld tækifæri verða til gefandi samveru og kynna við nýjar vinkonur.  Vilt þú koma með?

Nánari upplýsingar:
inga@skotganga.co.uk
kristinlinda@huglind.is
www.skotganga.co.uk

Hroki og hleypidómar Aðgát og örlyndi

Nýjustu greinarnar

Á döfinni

Scroll to Top